GRUNNNÁMSKEIÐ
Næsta námskeiðið verður haldið 3-26. febrúar 2025 og munu tímanir fara fram á mánudögum og miðvikudögum klukkan 19:00-20:00.
Farið verður yfir allar helstu hreyfingar og hugtök í crossfit og fólk undirbúið fyrir mætingu í almenna tíma.
Hægt er að velja á milli þess að skrá sig á stakt grunnnámskeiði eða grunnnámskeiði + mánuð.
ÁSKRIFTIR
Krakka-Fit
Bæta alhliða styrk, líkamsmeðvitund og sjálfstraust með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum sem allir geta tekið þátt í óhað færni.
Unglinga-Fit
Markmiðið er kenna unglingunum ólíkar æfingar með áherslu á styrk, úthald, liðleika og bætta líkamsvitund.
Eldra-Fit
Fjölbreyttar æfingar fyrir þá sem eru orðnir 60 ára eða eldri. Áherala er á alhliða líkamsstyrk, þol og bættan liðleika.
Grunnnámskeið

Almenn Áskrift

ÞJÁLFARAR

Helgi Arnar Jónsson

Gerald Brimir Einarsson

Svandís Erla Ólafsdóttir

Kynning á stöðinni
Ægir Gym er líkamsræktarstöð sem staðsett er á Hafnarbraut 8 á Akranesi. Stöðin var opnuð 11. september 2017 og hefur frá upphafi boðið upp á fjöldann allan af tímum, alla daga vikunnar.
Okkar markmið er að bjóða upp á æfingar sem allir geta lagað að sinni getu, og æfingaaðstöðu þar sem fólk nýtur þess að æfa í skemmtilegum félagsskap. Við bjóðum upp á æfingu dagsins (e. WOD - workout of the day) ásamt því að vera með ólympískar lyftingar, kraftlyftingar, active recovery og sérstaka tíma fyrir krakka, unglinga og þá sem eldri eru.
Í hverjum tíma er þjálfari sem leiðbeinir og tekur við fyrirspurnum.

